Monday, November 10, 2008

Lítið að frétta svosum. Búið að vera botnlaust að gera fyrstu daga mánaðarins. Flaug 33 tíma fyrstu 9 daga nóvember. Það kanski hlægja sumir að þessu en hverjum flugtíma fygir töluvert meiri vinnutími, þannig að þetta er góður slatti.
Nú styttist svo í að ég kíki upp til evrópu í nokkra daga. Er að fara í flugherminn, og nýti mér svo að ég get óskað eftir 5 dögum í röð í fríi. Var kanski búinn að segja frá því áður, en planið er að kíkja á skötuhjúin í Portúgal. Þar er enþá hlandvolgur lofthiti, svona sjálfsagt eitthvað milli þess sem er hérna í Kuala Lumpur og norður evrópu, ég tek hlýju fötin með mér ;)

Ég er enþá sjónvarps og internetlaus. Það er allt í vinnslu en erfitt að ganga frá svoleiðis hlutum þegar maður er mikið í burtu. Gleðifréttir hinsvegar eru að ég hef fengið hreindýr. Þær koma tvisvar í viku (sem er allt of mikið) og þrífa skítinn eftir mig, búa um rúmið mitt og ganga frá. Ljúft!

kv.

Sunday, November 2, 2008

Nú er ég fluttur inn. Ég er vel sáttur við íbúðina, þrátt fyrir að umferðarhávaði sé svoldið meiri en mér hafði heyrst þegar ég var að skoða hana á sínum tíma.
Íbúðin er full búin öllu, nema áhöldum í eldhúsi, sængum, koddum, handklæðum og þessháttar. Ég fæ smá sporðslu frá fyrirtækinu til að redda þannig hlutum og vill svo heppilega til að Ikea er hérna bara fimm mínútur í burtu. Ég þarf hinsvegar að fara þangað og þaðan í taxa, þannig að þetta eru nokkrar ferðir sem þarf að fara til að fullklára innkaupin.

Internetið tekur smá tíma að redda. Það sleppur í bili þar sem ég get farið á kaffi/veitingahús sem er á svæðinu og komist á netið þar. Sama gildir með sjónvarpið. Þetta er því svipað og það var á Njálsgötunni hjá mér síðustu tvo mánuðina, ekkert sjónvarp og ekkert net... svoldið sérstakt.

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fá mér bíl. Svona fyrst um sinn ætla ég að bíða með það, sjá hvernig gengur að notast við leigubíla. Eina er að leigubílstjórnarnir hérna eru að stórum hluta krimmar að eiga við. Ef maður nær sér ekki í taxa sem ekur á mæli, þá má maður búast við að borga tvö til þrefalt verð fyrir sama spölinn. Ég er með númer hjá leigubílastöð sem ekur allt á mælum, þannig að þetta gengur vel í flestum tilvikum. Það gerist bara einstaka sinnum að þeir hafa ekki bíl í nágrenninu og þá þarf maður að sitja undir fjárkúgunum eða ellegar að ganga heim. Glatað!

kv.

Thursday, October 30, 2008

Gleymdi að setja inn aðal atriðið! Ég ætlaði að reyna að koma þessu beint inn sem mynd en bara kann það ekki, þaning að verið svo væn að smella á viðhangandi viðhengis link og sjá.... þið munuð sjá gervihnattamynd af híbýlum mínum. Ég er í stóru blokkinni sem er merkt J.

http://maps.google.com/maps?f=q&hl=en&geocode=&q=Riana+Green,+Kuala+Lumpur&sll=37.0625,-95.677068&sspn=32.252269,79.101563&ie=UTF8&ll=3.136735,101.598575&spn=0.004703,0.013733&t=h&z=17


kv.
Nú er komið að því. Er að nota mér síðustu mínúturnar á fríu internetinu á hótelinu, því innan stundar er kominn tími á að flytja í íbúðina góðu á Riana Green. Það er góð tilfinning að yfirgefa hótelið, þrátt fyrir að það sé dúndur fínt. Það verður bara svo gott að komast í íbúð þar sem maður getur hagað sér eins og manni sýnist, eldað mat, poppað popp og verið með sitt dót á aðeins stærra svæði er bara svo miklu betra. Svo ekki sé talað um að það er orðið svo stutt í pönnukökur hjá Varða og Árný!

Svo er það bara Penang, Hong Kong, Shanghai og að lokum Dubai á næsta hálfa mánuðinum... að því gefnu að ekkert breytist, eHEM!

kv.

Wednesday, October 29, 2008

Jæææja,

Nú stefnir í að ég flytji inn í íbúðina góðu, sem ég fann fyrir nokkrum vikum, á morgun. Töfin á innflutning stafaði af því að kompaníið átti víst erfitt með að senda pening frá Íslandinu hingað til Austurlanda fjær og var því ekki hægt að borga leiguna. Þessu öllu hefur víst verið kippt í liðinn, mér til mikillar ánægju. Ég fór því í IKEA í gær, verslaði mér sæng, kodda, sængurföt og handklæði. Þetta er svona það sem ég þarf til að geta byrjað að búa, svo skoða ég betur þegar ég er kominn inn, hvað fleira vantar.
Það verður þá hægt að fara að lifa svona þokkalega eðlilegu lífi þegar maður er kominn inn, elda sér mat, poppa popp og kíkja í heimsóknir hjá félögunum. Myndir af íbúðinni sem ég tók þegar ég fór að skoða verða komnar inn á FLICKR síðuna mína innan skamst http://www.flickr.com/photos/orninn

Annars hefur vel þétt vinnuskrá haldið mér við efnið síðan ég fór út. Næsti mánuður virðist ætla vera þokkalegur en það er komið að hálfs árs flughermisprófi uppí Frankfurt og í framhaldi af því á ég fimm daga frí, sem ég ætla að taka út í Portúgal hjá Ómari og Joana.

Ég verslaði mér Squier rafmagnsgítar núna í síðasta túr til Ástralíu. Hann var á magnað góðu verði, þrátt fyrir efnahagshrunið á Íslandinu. Það er okku Íslendingum til happs þessa dagana að ástralski dollarinn er eitthvað hálf slappur og dregur því prísana aðeins nær einhverju eðlilegu. Með gítarnum fékk ég mér svokallað VOX AC30 box sem gerir mér kleift að æfa mig undir heyrnatólum og hafa nágrannana góða. Planið er að taka gítarinn með mér þegar farið verður í löngu túrana til Tashkent... þar sem ekkert er hægt að gera annað en að fá sér appelsínudjús og borða reyktan ost.

bið að heilsa í bili

Sunday, October 26, 2008

Er í Sydney, var að versla mér rafmagnsgítar.... ROCK ON!!!!!!!!

Monday, October 20, 2008

Nýir tímar, nýtt blogg

Ég hef verið að velta því fyrir mér undanfarið hvort maður ætti að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í þessu bloggveseni. Yfirleitt hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég nenni því ekki, hafi ekkert að segja og að tími minn sé langt um of verðmætur til að ég standi í að segja öðrum frá því hvað sé að gerast hjá mér. Svo áttaði ég mig á því að sjálfsagt eru einhverjir sem hafa áhuga. Þannig að ég prófa þetta enn á ný og sé hvernig fer.....

Ástæðan fyrir að ég nota nýja blogg adressu er einfaldlega sú að með því að vera kominn með g-mail account, þá er maður á vissan hátt orðinn bundinn í klafa einfaldleikans hjá google. Google er með blogger.com og að sjálfsögðu gmail.com. Minn fyrri bloggur er skráður á gamla e-mail adressu og því er engin leið að breyta. Upp á login og aðra hluti er því einfaldara að hafa blogg sem er skráður á gmail adressuna mína. Þannig er það nú bara og ég nenni ekki að hlusta á neitt röfl um þetta!

Staðan í dag er þessi.
Ég yfirgaf landann þann tuttugasta og fjórða síðasta mánaðar til að flytja til Kuala Lumpur (í daglegu tali kallað KL og verður notað þannig héðanaf). Var ég varla farinn af eyjunni fögru þegar banka og fjármálakreppan skall á af fullum þunga. Verandi í sambandi við fólk heima þá var umræðan alltaf á hinn sama veg. Allir eru gáttaðir á hvernig þetta gat farið svona svakalega út af sporinu, skilja það samt nokkurnvegin, líst ekkert á stöðuna, en eru samt samfærð um að þetta lagist allt á endanum. Það má segja að ég er svona nokkurnvegin sammála.
Sjálfur sé ég stöðuna best á tveim hlutum. gengið á peningunum sem ég tek út í hraðbönkum hérna úti og svo staðan á íbúðarláninu mínu. Skuld sem var um 15 milljónir fyrir nokkrum mánuðum er orðin að 21 milljón, laglegt það!
Skemtileg saga...
Þar sem ég var á klósettinu á elsta bar Sydney borgar stendur hliðiná mér ástrali, einnig að skvetta úr klauf, og byrjar að spjalla. Eitt sem kom mér á óvart við að stunda sósjal drykkju í Ástralíu er að tjallarnir spjalla alltaf á klóinu. Þar sem maður stendur og er að einbeita sér að bununni, mætir lókall í næsta stæði "aye mate, howsit going..." og upp úr þessu spretta hinar líflegustu samræður... þar sem maður stendur og er að pissa. Hvað um það,,,, skilst kauða sem svo að ég sé frá Írlandi og segir mér frá því að hann sé einmitt með yfirmanni sínum úr bankageiranum þarna og að sá sé einmitt írskur. Þar sem ég leiðrétti þennan misskilning og tjái honum að ég sé í raun Íslendingur, þá kemur þessi fleiga setning og mæli ég með því að fólk reyni að sjá hana fyrir sér með áströlskum hreim.
"Really!!! Youre from Iceland???!! Thats even better.... you guys are FUCKED!!!! HAHAHA!!!!!! You have to come over and I'll introduce you to my friends, they all work in the bank.... WELL BUY YOU A BEER!!!!"
Það er gaman að vera íslendingur í útlöndum;)

Af íbúðarmálum hérna úti er það að frétta að íbúðin er fundin, fyrir svolitlu síðan. Vandamálið er að það er víst einhver krísa á klakanum sem hamlar fjármagnsstreymi hingað niður á miðbaugi. Þar af leiðiandi er ég enþá inná hóteli þar til kompaníið getur borgað leiguna af íbúðinni. Af öllu að skilja þá ætti þetta að fara að leysast fljótlega.

Svo virðist sem í hvert skipti sem ég kem hingað út þurfi ég að slasa mig á andliti. Síðast gerðist það þannig að surf bretti sigldi á fullri ferð í andlitið á mér og gaf mér skurð á augnabrún. Í þetta skiptið tókst mér að misreikna mig hrapalega þar sem ég lá í rúminu og ætlaði að kveikja ljósið á náttborðinu hjá mér. Það fór ekki betur en svo að ég rúllaði framúr beddanum, hamraði hökunni í náttborðið og hlaut að launum sex spor. Það er allt gróið og sýndi ég mikla hetjudáð þegar ég tók saumana úr sjálfur með naglaskærum einum saman.

Nú er nóg komið í bili, bið ykkur vel að lifa...