Ég hef verið að velta því fyrir mér undanfarið hvort maður ætti að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í þessu bloggveseni. Yfirleitt hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég nenni því ekki, hafi ekkert að segja og að tími minn sé langt um of verðmætur til að ég standi í að segja öðrum frá því hvað sé að gerast hjá mér. Svo áttaði ég mig á því að sjálfsagt eru einhverjir sem hafa áhuga. Þannig að ég prófa þetta enn á ný og sé hvernig fer.....
Ástæðan fyrir að ég nota nýja blogg adressu er einfaldlega sú að með því að vera kominn með g-mail account, þá er maður á vissan hátt orðinn bundinn í klafa einfaldleikans hjá google. Google er með blogger.com og að sjálfsögðu gmail.com. Minn fyrri bloggur er skráður á gamla e-mail adressu og því er engin leið að breyta. Upp á login og aðra hluti er því einfaldara að hafa blogg sem er skráður á gmail adressuna mína. Þannig er það nú bara og ég nenni ekki að hlusta á neitt röfl um þetta!
Staðan í dag er þessi.
Ég yfirgaf landann þann tuttugasta og fjórða síðasta mánaðar til að flytja til Kuala Lumpur (í daglegu tali kallað KL og verður notað þannig héðanaf). Var ég varla farinn af eyjunni fögru þegar banka og fjármálakreppan skall á af fullum þunga. Verandi í sambandi við fólk heima þá var umræðan alltaf á hinn sama veg. Allir eru gáttaðir á hvernig þetta gat farið svona svakalega út af sporinu, skilja það samt nokkurnvegin, líst ekkert á stöðuna, en eru samt samfærð um að þetta lagist allt á endanum. Það má segja að ég er svona nokkurnvegin sammála.
Sjálfur sé ég stöðuna best á tveim hlutum. gengið á peningunum sem ég tek út í hraðbönkum hérna úti og svo staðan á íbúðarláninu mínu. Skuld sem var um 15 milljónir fyrir nokkrum mánuðum er orðin að 21 milljón, laglegt það!
Skemtileg saga...
Þar sem ég var á klósettinu á elsta bar Sydney borgar stendur hliðiná mér ástrali, einnig að skvetta úr klauf, og byrjar að spjalla. Eitt sem kom mér á óvart við að stunda sósjal drykkju í Ástralíu er að tjallarnir spjalla alltaf á klóinu. Þar sem maður stendur og er að einbeita sér að bununni, mætir lókall í næsta stæði "aye mate, howsit going..." og upp úr þessu spretta hinar líflegustu samræður... þar sem maður stendur og er að pissa. Hvað um það,,,, skilst kauða sem svo að ég sé frá Írlandi og segir mér frá því að hann sé einmitt með yfirmanni sínum úr bankageiranum þarna og að sá sé einmitt írskur. Þar sem ég leiðrétti þennan misskilning og tjái honum að ég sé í raun Íslendingur, þá kemur þessi fleiga setning og mæli ég með því að fólk reyni að sjá hana fyrir sér með áströlskum hreim.
"Really!!! Youre from Iceland???!! Thats even better.... you guys are FUCKED!!!! HAHAHA!!!!!! You have to come over and I'll introduce you to my friends, they all work in the bank.... WELL BUY YOU A BEER!!!!"
Það er gaman að vera íslendingur í útlöndum;)
Af íbúðarmálum hérna úti er það að frétta að íbúðin er fundin, fyrir svolitlu síðan. Vandamálið er að það er víst einhver krísa á klakanum sem hamlar fjármagnsstreymi hingað niður á miðbaugi. Þar af leiðiandi er ég enþá inná hóteli þar til kompaníið getur borgað leiguna af íbúðinni. Af öllu að skilja þá ætti þetta að fara að leysast fljótlega.
Svo virðist sem í hvert skipti sem ég kem hingað út þurfi ég að slasa mig á andliti. Síðast gerðist það þannig að surf bretti sigldi á fullri ferð í andlitið á mér og gaf mér skurð á augnabrún. Í þetta skiptið tókst mér að misreikna mig hrapalega þar sem ég lá í rúminu og ætlaði að kveikja ljósið á náttborðinu hjá mér. Það fór ekki betur en svo að ég rúllaði framúr beddanum, hamraði hökunni í náttborðið og hlaut að launum sex spor. Það er allt gróið og sýndi ég mikla hetjudáð þegar ég tók saumana úr sjálfur með naglaskærum einum saman.
Nú er nóg komið í bili, bið ykkur vel að lifa...
Monday, October 20, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Nei sko - gamli refur.
ReplyDeleteVelkominn aftur á þennan netmiðil.. sem er samt með nýrri adressu og tek ég þér fagnandi.
Bloggist þér vel og gott að vita að þú sveltur ekki í útlandinu meðan þú getur tilkynnt að þú sért íslendingur!
Kindin Krulla
Ha ha ha ha.... skemmtilegur ástrali þarna á ferð!
ReplyDeleteRagga
Alltaf þegar ég hugsa um ástralíu og "mate" þá dettur mér Ragga í hug. Skál Ragga!!!
ReplyDeleteHelga Dröfn
Blessaður!
ReplyDeleteÉg er nú ekki mikið fyrir að lesa blogg hjá hinum og þessum en það getur verið skemtilegt að fylgjast með völdum aðilum eins og þér ;) Endilega haltu áfram að blogga svo við getum heyrt af ótrúlegum sögum af þér og ég hafi þá eitthvað sniðugt að segja honum bróður þínum.
Kv. Birna G.