Monday, November 10, 2008

Lítið að frétta svosum. Búið að vera botnlaust að gera fyrstu daga mánaðarins. Flaug 33 tíma fyrstu 9 daga nóvember. Það kanski hlægja sumir að þessu en hverjum flugtíma fygir töluvert meiri vinnutími, þannig að þetta er góður slatti.
Nú styttist svo í að ég kíki upp til evrópu í nokkra daga. Er að fara í flugherminn, og nýti mér svo að ég get óskað eftir 5 dögum í röð í fríi. Var kanski búinn að segja frá því áður, en planið er að kíkja á skötuhjúin í Portúgal. Þar er enþá hlandvolgur lofthiti, svona sjálfsagt eitthvað milli þess sem er hérna í Kuala Lumpur og norður evrópu, ég tek hlýju fötin með mér ;)

Ég er enþá sjónvarps og internetlaus. Það er allt í vinnslu en erfitt að ganga frá svoleiðis hlutum þegar maður er mikið í burtu. Gleðifréttir hinsvegar eru að ég hef fengið hreindýr. Þær koma tvisvar í viku (sem er allt of mikið) og þrífa skítinn eftir mig, búa um rúmið mitt og ganga frá. Ljúft!

kv.

1 comment:

  1. Er enn svo mikið að gera að þú hefur ekki tíma til að blogga? Eða er svo lítið að gera að þú hefur ekkert að segja?

    Kindin Krulla

    ReplyDelete