Sunday, November 2, 2008

Nú er ég fluttur inn. Ég er vel sáttur við íbúðina, þrátt fyrir að umferðarhávaði sé svoldið meiri en mér hafði heyrst þegar ég var að skoða hana á sínum tíma.
Íbúðin er full búin öllu, nema áhöldum í eldhúsi, sængum, koddum, handklæðum og þessháttar. Ég fæ smá sporðslu frá fyrirtækinu til að redda þannig hlutum og vill svo heppilega til að Ikea er hérna bara fimm mínútur í burtu. Ég þarf hinsvegar að fara þangað og þaðan í taxa, þannig að þetta eru nokkrar ferðir sem þarf að fara til að fullklára innkaupin.

Internetið tekur smá tíma að redda. Það sleppur í bili þar sem ég get farið á kaffi/veitingahús sem er á svæðinu og komist á netið þar. Sama gildir með sjónvarpið. Þetta er því svipað og það var á Njálsgötunni hjá mér síðustu tvo mánuðina, ekkert sjónvarp og ekkert net... svoldið sérstakt.

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fá mér bíl. Svona fyrst um sinn ætla ég að bíða með það, sjá hvernig gengur að notast við leigubíla. Eina er að leigubílstjórnarnir hérna eru að stórum hluta krimmar að eiga við. Ef maður nær sér ekki í taxa sem ekur á mæli, þá má maður búast við að borga tvö til þrefalt verð fyrir sama spölinn. Ég er með númer hjá leigubílastöð sem ekur allt á mælum, þannig að þetta gengur vel í flestum tilvikum. Það gerist bara einstaka sinnum að þeir hafa ekki bíl í nágrenninu og þá þarf maður að sitja undir fjárkúgunum eða ellegar að ganga heim. Glatað!

kv.

2 comments:

  1. Nema hérna heima hefurðu fullt af vinum að heimsækja þó þú sért TV og netslaus!
    Varla svo margir í KL að heimsækja?

    HD

    ReplyDelete
  2. ég kem pottþétt að heimsækja þig ef ég kem til KL, sem er nokkuð líklegt eftir áramótin. En ég eyddi póstinum sem þú sendir mér með local símanúmerinu þínu. Þú kannski baunar því aftur á mig :-)
    Kv,
    Frikki

    ReplyDelete