Jæææja,
Nú stefnir í að ég flytji inn í íbúðina góðu, sem ég fann fyrir nokkrum vikum, á morgun. Töfin á innflutning stafaði af því að kompaníið átti víst erfitt með að senda pening frá Íslandinu hingað til Austurlanda fjær og var því ekki hægt að borga leiguna. Þessu öllu hefur víst verið kippt í liðinn, mér til mikillar ánægju. Ég fór því í IKEA í gær, verslaði mér sæng, kodda, sængurföt og handklæði. Þetta er svona það sem ég þarf til að geta byrjað að búa, svo skoða ég betur þegar ég er kominn inn, hvað fleira vantar.
Það verður þá hægt að fara að lifa svona þokkalega eðlilegu lífi þegar maður er kominn inn, elda sér mat, poppa popp og kíkja í heimsóknir hjá félögunum. Myndir af íbúðinni sem ég tók þegar ég fór að skoða verða komnar inn á FLICKR síðuna mína innan skamst http://www.flickr.com/photos/orninn
Annars hefur vel þétt vinnuskrá haldið mér við efnið síðan ég fór út. Næsti mánuður virðist ætla vera þokkalegur en það er komið að hálfs árs flughermisprófi uppí Frankfurt og í framhaldi af því á ég fimm daga frí, sem ég ætla að taka út í Portúgal hjá Ómari og Joana.
Ég verslaði mér Squier rafmagnsgítar núna í síðasta túr til Ástralíu. Hann var á magnað góðu verði, þrátt fyrir efnahagshrunið á Íslandinu. Það er okku Íslendingum til happs þessa dagana að ástralski dollarinn er eitthvað hálf slappur og dregur því prísana aðeins nær einhverju eðlilegu. Með gítarnum fékk ég mér svokallað VOX AC30 box sem gerir mér kleift að æfa mig undir heyrnatólum og hafa nágrannana góða. Planið er að taka gítarinn með mér þegar farið verður í löngu túrana til Tashkent... þar sem ekkert er hægt að gera annað en að fá sér appelsínudjús og borða reyktan ost.
bið að heilsa í bili
Wednesday, October 29, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
AUHHHH þér er hér með boðið í öll partý hjá okkur með einu skilyrði. Gítarinn verður með!!
ReplyDeleteKRULLAN
Hehe, ok!
ReplyDelete